Auglýsing

Á eyðieyju einni fjarri allri mannabyggð  (auðvitað) strandaði skip en á skipinu var fólk samankomið af ólíkum  þjóðernum. En það var ekki fyrr en mánuði síðar sem greyið fólkið fannst og  hafði þá ýmislegt á daga þeirra drifið...

Strandaglóparnir voru:
2 ítalskir menn og ein ítölsk kona
2 franskir menn og ein frönsk kona
2 þýskir menn og ein þýsk kona
2 grískir menn og ein grísk kona
2 breskir  menn og ein bresk kona
2 búlgarskir menn og ein búlgörsk kona
2 japanskir menn og ein japönsk kona
2 kínverskir menn og ein kínversk  kona
2 bandarískir menn og ein bandarísk kona
2 írskir menn og ein írsk  kona
2 íslenskir karlmenn og 1 íslensk kona

Mánuði síðar á þessari  sömu eyju höfðu eftirfarandi atburðir átt sér stað:

Annar Ítalinn drap hinn vegna ítölsku konunnar

Frönsku mennirnir og franska konan lifa í sátt og samlyndi

Þjóðverjarnir hafa komið sér upp mjög stífu vikulegu fyrirkomulagi um að heimsækja þýsku konuna

Grikkirnir sofa hjá hverjum öðrum á meðan gríska konan þrífur og eldar handa þeim

Bretarnir bíða  enn eftir að einhver kynni þá fyrir ensku konunni

Búlgararnir horfðu  lengi á sjóndeildarhringinn og svo á búlgörsku konuna og stungu sér síðan til  sunds

Japanirnir sendu símbréf til Tokýó og bíða enn leiðbeininga

Kínverjarnir hafa komið upp apóteki, vínbúð, veitingastað  og þvottahúsi og kínverska konan er barnshafandi af völdum "þeirra" því starfsmenn vantar

Bandaríkjamennirnir eru á barmi taugaáfalls því  bandaríska konan kvartar í sífellu yfir líkamsvextinum sínum; yfir eðli  konunnar; hvernig hún er fær um að gera hvaðeina sem þeir geta; nauðsyn þess  að lifa fullnægjandi lífi; jafnri skiptingu á heimilisverkum; hvernig sandurinn og pálmatréin valda því að hún virðist feitari; hvernig síðasti  kærastinn virti skoðanir hennar og kom betur fram við hana en þeir tveir; hve samband hennar við móður sína verður betra með degi hverjum og að lokum hve skattarnir eru lágir og að það skuli aldrei rigna

Írarnir tveir hafa  skipt eyjunni í norður og suður og sett upp landamæri. Þeir minnast ekki hvort  til kynlífs hafi komið því það er allt í móðu eftir fyrstu lítrana af  kókosviskíinu. En þeir eru sáttir því Bretarnir eru ekki að njóta sín.

Íslendingarnir eru orðnir stórskuldugir við verslanir og veitingahús Kínverjanna og brugghús Íranna. Íslenska konan er búin að sofa hjá ítölsku, frönsku og amerísku karlmönnunum á meðan íslensku karlmennirnir eru búnir að reikna út að þeir væru fallegastir, sterkastir, gáfaðastir og fjölmennastir miðað við höfðatölu...



Atburđarteljari

Könnun

hvađ á ég eftir ađ endast lengi hérna í ţetta skiptiđ?

Prófíll

  • Nafn: Agnes Ýr Ađalsteinsdóttir
  • Stađur: kópavogur
  • Atvinna: er ađ vinna á eldsmiđjunni =)
  • Hjúskaparstađa: á lausu =)
  • Um mig: ég er 20. stelpa frá akureyri sem bý hjá vinkonu minni og kćrastanum hennar og 2 yndislegum börnum sem ţau eiga =) ég er ađ fara í skóla =) planiđ er ađ klára loksins stúdentin =) vona bara ađ ţađ gangi betur en seinast :ţ annars hef ég rosalega lítiđ ađ segja meir um mig

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...