Uppfærsla frá Kærasta 7.0 til Eiginkona 1.0
Kæra tæknilega aðstoð:
Um daginn uppfærði ég úr Kærustu 7.0 í Eiginkonu 1.0. Eftir að ég hafði sett
upp Eiginkonu 1.0 í tölvunni, setti forritið sig sjálft inn í öll önnur
forrit í tölvunni. Það ræsir sig sjálfkrafa þegar ég kveiki á tölvunni,
vaktar allar mínar athafnir og kemur sífellt með tillögur að krefjandi
aukaforritum eins og t.d. Barn 2.0, þó allir viti að ÞAÐ forrit er mjög illa
þróað.
Eiginkonuforritið tekur mikinn tíma og notar mikið minni. Það er ómögulegt
að fá það til að víkja meðan ég nota mín uppáhaldsforrit. Gömul forrit eins
og Pókerkvöld 10.3, Bjórkvöld 2.5 og Sunnudagafótbolti 5.0 virka ekki
lengur. Það stóð ekkert um þetta í leiðbeiningunum fyrir forritið.
Ég er að íhuga að fara bara aftur í Kærustu 7.0, en það virðist ekki einu
sinni vera hægt að fjarlægja Eiginkonu 1.0. Getið þið hjálpað mér??
Kveðja,
Ráðvilltur og Ráðþrota
Kæri RR
Vandamál þitt er þekkt og mjög algengt, margir kvarta undan þessu, en þetta
byggist að mestu leyti á misskilningi. Margir menn uppfæra úr Kærustu 7.0 í
Eiginkonu 1.0 af því að þeir halda að Eiginkona 1.0 sé þjónustu- og
afþreyingarforrit. Þar liggur misskilningurinn hjá flestum. Eiginkona 1.0 er
stýriforrit, hannað til að stjórna öllu. Það er ógerlegt að fjarlægja
Eiginkonu 1.0 og fara aftur í Kærustu 7.0 þegar þú hefur sett það upp einu
sinni. Sumir hafa reynt að setja upp Kærustu 8.0 eða Eiginkonu 2.0, en hafa
þá setið uppi með fleiri vandamál en með Eiginkona 1.0. Við mælum með því að
þú haldir Eiginkonu 1.0 og reynir að gera það besta úr því sem komið er. Þú
getur t.d. lesið allan kafla 6 í leiðbeiningunum, "Algengar villur".
Forritið mun keyra snurðulaust, svo framarlega sem þú tekur ábyrgð á öllum
villum, óháð ástæðu og uppruna þeirra. Það besta sem þú getur gert er að
fara strax í Start/Run og skrifa FYRIRGEFÐU til að stýrikerfið
villuhreinsist og keyri eðlilega.
Eiginkona 1.0 er flott forrit, en krefst mikils viðhalds. Þú ættir að íhuga
að kaupa meiri hugbúnað til að bæta afkastagetuna. Við mælum með Blómum 2.1,
Súkkulaði 5.0 eða í neyðartilfelli Pels 2000.
En þú mátt ekki undir neinum kringumstæðum setja upp Vinkona_í_mínípilsi
3.3. Eiginkona 1.0 styður ekki þann hugbúnað og það myndi sennilega gera út
af við tölvuna.
Með vinsemd og virðingu,
Tæknileg Aðstoð
